laugardagur, nóvember 14, 2009
Ég komst áfallalaust frá föstudeginum 13. en þú ??

***sagði--Sólveig--***
16:46

+ + + + + + + + + + + +


föstudagur, nóvember 06, 2009
Úff, það má nú bara minnstu muna að ég gefist ekki bara endanlega upp á því að skoða fréttamiðla netheima.
Dettur aldrei neinum í hug að fullvinna fréttir áður en þær eru birtar, eða er mbl.is bara vettvangur aðila sem vilja koma sinni skoðun á framfæri.

Þessi frétt birtist á vef mbl í gær og svo í dag kom þessi.

Hefði ekki bara verið einfaldara að tala við dómstjóra héraðsdóms Reykjavíkur strax og hafa þetta sem eina frétt. Ég meina, hvað eru ekki margir sem missa alltaf af "hinni" hliðinni þegar að þetta er gert svona ??

P.s. svo mæli ég eindregið með að fólk kíki á þessa frétt, ætli þetta sé ekki mótvægið við allar vælu-kreppufréttirnar sem fólk er orðið svo leitt á :)

***sagði--Sólveig--***
16:01

+ + + + + + + + + + + +


mánudagur, nóvember 02, 2009
Jæja, þá er hinni viðburðaríku helgi lokið.
Óperan, Kokteill, Stokkseyri, Prjón, já nóg að gera :)

Þá er rannsókn hafin á *stóra-rúðubrotsmálinu*
Ég hef gefið skýrslu.
Nú er bara spurningin
"hvar varst þú á laugardagskvöldið frá 18.50 - 22.50 ??"

***sagði--Sólveig--***
11:38

+ + + + + + + + + + + +


fimmtudagur, október 29, 2009
Fékk Stroganoff í hádeginu, er helst á því að þetta hafi verið þýskt stroganoff fremur er rússneskt :p
Hmm... þið voruð ekki með mér úti, þið fattið kannski ekki brandarann...
Þannig er mál með vexti að Þjóðverjar hafa almennt mjög viðkvæma braðglauka, þess vegna er það þannig að ef matseðill á "þýskum" veitingastað (s.s. veitingastað staðsettum í Þýskalandi) segir að eitthvað sé sterkt þá þýðir það almennt að það hafi verið notaður örlítill pipar og maturinn beri vott af bragði. Það sama á við ef matur er sagður vera "hot hot hot", hann er það ekki !!
Þetta Stroganoff var þannig, smá bragð og það var allt. Ég sem hélt að Rússar væru dálitlir kryddkarlar, ég fann allavega enga þörf á að skola þessu niður með vodka :(

***sagði--Sólveig--***
13:34

+ + + + + + + + + + + +


þriðjudagur, október 27, 2009
Það er sko ekki nóg með að mín sé í mastersnámi, framkvæmdastjóri og aðstoðarkennari heldur er mín svo merkileg að mín var sérstaklega beðin um að halda fyrirlestur á Alþjóðadegi Háskólans !!
Eða já, stutta kynningu allavega :)

***sagði--Sólveig--***
15:09

+ + + + + + + + + + + +


föstudagur, október 23, 2009
Aldarfjórðungsskýrsla Sólveigar

Nám, störf og áhugamál

Á fyrstu hluta tímabilsins fóru fram miklar framfarir, ég lærði að halda höfði, sitja, labba, tala og borða sjálf, svo eitthvað sé nefnt. Fljótlega eftir það hófst skólagöngunni sem enn er ekki að fullu lokið, en á tímabilinu skipti ég alls fimm sinnum um skóla.
Á tímabilinu sótti ég leikskólann Æskukot, Grunnskóla Stokkseyrar (sem síðar breyttist í Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri), Grunnskólann í Langsur, Fjölbrautarskóla Suðurlands, Háskóla Íslands og Háskóla Konstanz.
Árangurinn af þessu námi öllu saman er grunnskólapróf, stúdentspróf af félagsfræða-, náttúrufræða- og málabraut og Bakkalárspróf í lögfræði.
Á tímabilinu stundaði ég einnig hina ýmsu vinnu og ber þar hæst embætti framkvæmdarstjóra lögfræðiaðstoðar Orator, skrifstofuvinnu á fangelsinu að Litla Hrauni og vinnu hjá lögfræðideild innheimtusviðs Tollstjórans í Reykjavík, einnig má nefna afgreiðslustörf í verslunum, beinagöngu á Fjöruborðinu og svo þetta eina skipti sem ég vann við fasteignasölu að ógleymdum sumrunum í hreppnum á Stokkseyri.
Þá hafa áhugamálin þróast frá barbídúkkum og playmoköllum til fótbolta með stelpunum, prjónaskapar og meðsöngs í bílnum.
Á tímabilinu hef ég verið í tveimur kórum, og farið í tvær utanlandsferðir á þeirra vegum. Tekið þátt í nokkrum leiksýningum og söngkeppnum.

Fjölskylda og vinir
Nokkrar breytingar hafa orðið í fjölskyldunni, frænkur, frændur, "systir" og mágkonur bæst í hópinn og Snúður, kominn og farinn en hann fylgdi mér um helming tímabilsins.
Vinahópurinn hefur einnig tekið ýmsum breytingum í gegnum árin þó ákveðnir einstaklingar hafi aldrei fallið úr lestinni.
Eftir vandlega íhugun og greiningu tel ég að ég hafi einungis átt í einu alvöru ástarsambandi á tímabilinu þó skot og samskot hafi verið fleiri. Hefur þetta eina samband verið viðvarandi á um fimmtungi tímabilsins.

Heimurinn í kring
Umhverfi mitt hefur heldur betur breyst á tímabilinu frá því að vera verndað í rimlarúmi og út í frelsi hinnar fullorðnu konu.
Þá má segja að tímarnir hafi breyst úr fiskveiðisamfélagi yfir í peningamanna-fjármögnunar-kvótakónga-svikahrappa-samfélag og þaðan yfir á svokallaða "krepputíma". Þó virðist sem á þessu svonefndu krepputímum að fólk ætli engu að síður að lifa við sömu vellystingar og áður, eins og háhraðanettenginum og áskrift að stöð tvö.
Miklar breytingar hafa orðið í tæknigeiranum og má þar nefna hinur ýmsu nýjungar sem litið hafa dagsins ljós, t.a.m. internetið, flatskjá, farsíma og sýndargæludýr.
Það virðist þó sem sumt breytist aldrei, t.d. vinsældir strumpanna.

Hefur í þessari skýrslu verið stiklað á stóru í viðburðum aldarfjórðungsins en vona ég að hún verði ykkur til gagns og gamans.

***sagði--Sólveig--***
08:00

+ + + + + + + + + + + +


laugardagur, október 17, 2009
Sólveigsenráðið, sem er hæstráðandi í lífi mínu, hefur skorið upp úrskurð þess efnis að aldarfjórðungsskýrsla skuli birt bráðlega. Hefur ráðið veitt mér frest til 23. okt. til að skila inn fullnaðarskýrslu. Umsókn um uppgjör í evrum var þá hafnað af ráðinu og mun skýrslan því eingöngu birt á íslensku.

***sagði--Sólveig--***
09:28

+ + + + + + + + + + + +



ég+

Sólveig
25 ára
laganemi
frá Stokkseyri

MYNDIR
Snúður myndi aldrei...

vinirnir mí­nir+

Hildur Björk
Lísa Skvísa
Magnea Reyndís
Mattz
Smári Jökull
Sögukennarinn
Þórdís Björg

link link ;)+


The WeatherPixie
Ex Officio
explosm
wulffmorgenthaler
amazing superpowers
baggalútur
bétveir

STOKKSEYRI

dómar
héraðsdómar
lögin
reglugerðir

google
sniðug próf
hverjum líkist þú?

hefnd
dýranna
muhahaha

leikir
leikir
leikir
leikir
leikir

vísir
morgunblaðið
survival of the flottest
Til hamingju Ísland
Sjáumst með Silvíu Nótt
Uppistand
Fyndnast í heimi

senda sms

Radio+

Effemm
Flass

Sólveig of the past+

#nóvember 2002#
#desember 2002#
#janúar 2003#
#febrúar 2003#
#mars 2003#
#apríl 2003#
#ágúst 2003#
#september 2003#
#október 2003#
#nóvember 2003#
#desember 2003#
#janúar 2004#
#febrúar 2004#
#mars 2004#
#apríl 2004#
#maí 2004#
#júní 2004#
#júlí 2004#
#ágúst 2004#
#september 2004#
#október 2004#
#nóvember 2004#
#desember 2004#
#janúar 2005#
#febrúar 2005#
#mars 2005#
#apríl 2005#
#maí 2005#
#júní 2005#
#júlí 2005#
#ágúst 2005#
#september 2005#
#október 2005#
#nóvember 2005#
#desember 2005#
#janúar 2006#
#febrúar 2006#
#mars 2006#
#apríl 2006#
#maí 2006#
#júní 2006#
#júlí 2006#
#ágúst 2006#
#september 2006#
#október 2006#
#nóvember 2006#
#desember 2006#
#janúar 2007#
#febrúar 2007#
#mars 2007#
#apríl 2007#
#maí 2007#
#júní 2007#
#júlí 2007#
#ágúst 2007#
#september 2007#
#október 2007#
#nóvember 2007#
#desember 2007#
#janúar 2008#
#febrúar 2008#
#mars 2008#
#apríl 2008#
#maí 2008#
#júní 2008#
#júlí 2008#
#ágúst 2008#
#september 2008#
#október 2008#
#nóvember 2008#
#desember 2008#
#janúar 2009#
#febrúar 2009#
#mars 2009#
#apríl 2009#
#maí 2009#
#júní 2009#
#júlí 2009#
#ágúst 2009#
#september 2009#
#október 2009#
#nóvember 2009#